Um fyrirtaekid

Fasteignamiðstöðin


Fasteignamiðstöðin var stofnuð í júlí 1958 af Sigurði Sigfússyni.  Hún var fyrst til húsa að Austurstræti 14 í Reykjavík.  Seinni hluta ársins 1985 kaupir Magnús Leópoldsson Fasteignamiðstöðina í félagi við aðra og var hún þá til húsa að Hátúni 2B í Reykjavík.  Það er svo 9. júní 1994 sem Magnús öðlast löggildingu sem löggiltur fasteigna- og skipasali og í dag á hann og rekur Fasteignamiðstöðina.

Fasteignamiðstöðin var staðsett í Skipholti 50b í Reykjavík frá 1988, en þann 3. nóvember 2002 var starfsemin flutt í glæsilegt húsnæði að Hlíðasmára 17 í Kópavogi.

Alhliða fasteignasala


Fasteignamiðstöðin er alhliða fasteignasala sem selur íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, bújarðir og sumarhús, stærri fyrirtæki auk þess að gera matsgerðir fyrir einstaklinga og stofnanir.  Fasteignamiðstöðin hefur skapað sér ákveðna sérstöðu á markaðnum með því að vera langstærsti aðilinn í sölu bújarða.

Verðmöt


Undanfarin ár hefur á vegum Fasteignamiðstöðvarinnar verið gerður mikill fjöldi verðmata fyrir einstaklinga og stofnanir.  Sá þáttur í starfseminni hefur aukist mjög mikið en gildi áreiðanlegs verðmats er mjög mikið þar sem þekking er í fyrirrúmi.

Fasteignamiðstöðin ehf

Hlíðasmára 17, 203 Kópavogur

Sími 550 3000,  fax 550 3001

Kt. 500505-2570